Á Suðurnesjum eru í gildi sérstakar samþykktir um hunda- og kattahald. Eigendur hunda og katta skulu afla sér leyfis hjá embættinu fyrir hvert dýr í þeirra umsjá. Eigendum dýranna ber að hlýta þeim samþykktum sem í gildi eru.
Hundaeigendum er sérstaklega bent á að lausaganga hunda er bönnuð. Heilbrigðiseftirlitið sér um að fanga lausa hunda og taka við lausum hundum sem lögregla og aðrir fanga. Hundaeigandi ber þann kostnað sem af þessu hlýst. Föngunargjald er 16.200 krónur ef laus hundur er fangaður af starfsmanni heilbrigðiseftirlitsins, en 7.200 krónur ef hundurinn er fangaður af öðrum s.s. lögreglu. Ef geyma þarf hundinn leggst við 1.800 króna geymslugjald fyrir hvern dag sem hundurinn er í geymslu.